This website requires JavaScript.

Algengar spurningar og svör

Spurt og svarað

Hér má finna algengar spurningar og svör um PayAnalytics hugbúnaðinn. Skildir þú ekki finna það sem þú ert að leita að hér skaltu ekki hika við að hafa samband eða bóka kynningarfund svo við getum sýnt þér hugbúnaðinn.

Hvaða gögn þarf ég til að keyra fyrstu greininguna?

Til að gera jafnlaunagreiningu þarftu lista yfir alla starfsmenn hjá fyrirtækinu þínu. Það er nóg að hafa eftirfarandi upplýsingar til að keyra fyrstu greininguna:

  • Einkvæmt auðkenni (s.s. númer eða textastreng) fyrir hvern starfsmann.
  • A.m.k. eina lýðfræðilega breytu, eins og kyn.
  • Starfaflokk
  • Laun

Hægt er að nota hvaða aðra breytu sem er þegar greining er keyrð, t.d. fjölda vinnustunda, menntunarkröfu, starfsreynslu eða fjölda undirmanna.

Þegar búið er að keyra fyrstu greininguna er svo hægt að meta hvort það sé skynsamlegt að safna meiri gögnum.

  • #hvar-á-ég-að-byrja

Er hægt að flytja gögn úr öðrum hugbúnaði beint inn í PayAnalytics?

Já, við erum með Vefþjónustu (API) sem hægt er að nota til að senda gögnin beint inn í kerfið úr öðrum hugbúnaði.

  • #hvar-á-ég-að-byrja
  • #hlaða-inn-gögnum

Get ég greint gögn í hvaða gjaldmiðil sem er?

Já þú getur unnið með gagnasett í hvaða gjaldmiðli sem er. Ef þú vilt vinna með marga gjaldmiðla, getur þú skilgreint gengi þeirra í kerfinu. Þá getur þú auðveldlega skoðað gagnasett og unnið með niðurstöður greininga í þeim gjaldmiðlum, óháð því hvaða gjaldmiðli (eða gjaldmiðlum) upprunalegu gögnin eru í.

  • #gjaldmiðill

Styður PayAnalytics við jöfn laun fyrir sömu störf?

Já, PayAnalytics styður við jöfn laun fyrir sömu störf og jöfn laun fyrir sambærileg störf.

  • #sambærileg-störf
  • #jafnverðmæt-störf

Hvað kostar að nota PayAnalytics?

Hvert er verðið? Það er einfalt að gerast viðskiptavinur. Aðgangur að hugbúnaðinum er seldur í áskrift og þú getur byrjað að nota hann um leið. Verðið er byggt á fjölda þeirra starfsmanna sem lausnin á að greina. Lágmarksáskriftartími er eitt ár, innifalið í verðinu er ráðgjöf frá sérfræðingum okkar við að koma ykkur af stað. Bókið fund til að fá innsýn inn í það hvernig lausnin virkar og nálgast upplýsingar um verð.

  • #hvar-á-ég-að-byrja
  • #áskrift
  • #kostnaður

Er erfitt að læra á kerfið?

Við höfum það að leiðarljósi að gera kerfið okkar eins notendavænt og kostur er. Flestir notendur eru farnir að keyra greiningar á innan við klukkustund. Handbók kerfisins er innbyggð í kerfið og inniheldur myndbönd og textalýsingar á því hvernig nota skal hugbúnaðinn. Handbókin inniheldur líka gagnlegar ábendingar um túlkun niðurstaðna.

  • #hvar-á-ég-að-byrja
  • #handbók

Hvar eru gögn viðskiptavina geymd?

Stofnað er sérstakt svæði í gagnagrunni fyrir hvern viðskiptavin. Gögn viðskiptavina eru geymd á því markaðssvæði sem óskað er eftir en sem stendur erum við með gagnagrunna í Evrópu og Bandaríkjunum. Geymsla gagna uppfyllir reglur og lög sem gilda á því svæði sem við á hverju sinni.

  • #öryggismál

Er í boði að nota tveggja þátta auðkenningu (2-factor authentication)?

Já.

  • #öryggismál

Styður PayAnalytics við launagreiningar fyrir fleiri kyn en karla og konur?

Já.

  • #kyn

Hvernig virkar hugbúnaðurinn?

Þú skráir þig inn í PayAnalytics í vafranum þínum. Flestir eru með launagögnin sem á að greina í Excel skrá og henni er einfaldlega hlaðið inn. Einnig er mögulegt að tengja forritið beint við launakerfi (s.s. Kjarna). Hugbúnaðurinn umbreytir gögnunum í skýrslur og gröf sem lýsa þínum launastrúktur. Í framhaldinu er hægt að keyra greiningar á launagögnunum eftir þörfum og útbúa sérsniðnar skýrslur.

  • #hvar-á-ég-að-byrja

Er hægt að nota hugbúnaðinn fyrir fyrirtæki af öllum stærðum?

Við stefnum að því að gera launagreiningar aðgengilegar öllum, óháð stærð. Ákveðin virkni í hugbúnaðinum mun þó ekki gagnast fyrirtækjum með færri en 50 starfsmenn að fullu.

  • #stærð-fyrirtækis

Er mögulegt að fá aðstoð við að byrja?

Já. Við bjóðum upp á ráðgjöf fyrir nýja viðskiptavini. Í upphafi getur reynst gagnlegt að fara yfir þau gögn sem liggja fyrir og skoða hvernig best sé að setja þau upp. Í framhaldinu er farið yfir hvernig jafnlaunagreining er keyrð, hvernig lesið er úr niðurstöðunum og hvaða skref sé best að taka í framhaldinu til að loka launabilinu.

  • #hvar-á-ég-að-byrja
  • #ráðgjöf

Hvernig get ég byrjað að nota PayAnalytics hugbúnaðinn?

Hvernig byrja ég að nota PayAnalytics? Það er auðvelt að byrja. Bókaðu fund með sérfræðingum okkar eða hafðu samband með því að senda okkur fyrirspurn hér á vefsíðunni. Við hjálpum þér að komast af stað á svipstundu.

  • #hvar-á-ég-að-byrja
  • #áskrift

Styður PayAnalytics við jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf?

Já, PayAnalytics styður við jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Einn hluti PayAnalytics er Starfsmat en þar geta notendur metið virði starfa byggt á stöðluðum og hlutlausum forsendum. Með Launakortlagningu er svo auðveldlega hægt að bera saman laun fyrir störf með sambærilegt virði, jafnvel þótt störfin geti í eðli sínu verið ólík.

  • #jafnverðmæt-störf
  • #sambærileg-störf

Þarf að borga sérstaklega fyrir hvern og einn notanda í kerfinu?

Nei, áskriftin setur ekki takmörk á fjölda notenda.

  • #fjöldi-notenda

Hvernig kem ég gögnum inn í kerfið?

Hægt er að hlaða upp Excel skrá, .csv skrá eða nota vefþjónustu til að tengjast mannauðs- og launakerfum.

  • #hvar-á-ég-að-byrja
  • #hlaða-inn-gögnum

Uppfyllir PayAnalytics GDPR reglugerðina?

Já.

  • #öryggismál
  • #persónuvernd
  • #gdpr

Hvernig tryggir PayAnalytics gagnaöryggi?

  • Allur gagnafluttningur fer í gegnum örugga https tengingu með háum kröfum um dulkóðunarstaðla (TLS 1.2).
  • Gögn í gagnagrunni eru dulkóðuð.
  • Öryggisafrit eru geymd í 30 daga en eytt með sjálfvirkum hætti eftir það.
  • Stuðningur við tveggja þátta auðkenningu (TOTP).
  • Óháðir ytri aðilar framkvæma reglulegar öryggisprófanir (penetration tests).
  • #öryggismál